Friday, October 20, 2006

Krakkar mínir komiði sæl :)

Byrjum á því að hrópa húrra fyrir Ríkey og bloggsíðuframtakinu hennar :) Vonum bara að allir verði duglegir að skrifa eitthvað hér inn!!

En að öðru... ég og Sóley erum mjög svekktar yfir því að reunionið margrómaða hafi ekki verið haldið í Stokkhólmi eða í Barcelona... þess vegna ætlum við að hafa 5 daga reunion í hinu nýja konungsríki Sóleyjar og summerresortinu hans Eiðs Smára. Jább fyllerí og vitleysa í Barcelona 23.-28. okt og þið eruð hjartanlega velkomin (er það ekki annars Sóley?)

Vonandi fáum við að vera með á næsta móti,
þangað til þá
Katrín

Wednesday, October 04, 2006

Ég var að senda öllum Invite þannig að allir geti skrifað á síðuna. Ef einhver fékk ekki sitt eða ef það er ef þið þurfið að fá sent invite aftur sendið mér þá bara línu á rhm@hi.is.
Hlakka til að heyra frá ykkur og endilega ef þið eigið skemmtilegar myndir þá getið þið sent mér þær og ég get sett þær inn á myndasíðuna:)

Wednesday, September 27, 2006

Jább fer ekki ofan af því að við erum besti bekkur í heimi;) En reunionið tókst mjög vel - vona að allir hafi skemmt sér vel. Ég ákvað að búa til myndasíðu og setja inn myndirnar mínar þar. Ef einhver vill senda mér sínar myndir þá get ég bætt þeim við:) Því miður þá kom sú snilldarhugmynd að taka bekkjarmynd aðeins of seint og vantar því Margréti og Silju inn á hana, ásamt öllum þeim sem ekki komust.